Sölusvið

Vesturvör 36, 200 Kópavogur

HD starfrækir öflugt sölusvið (sjá vöruflokka) og dæluþjónustu að Vesturvör 36 í Kópavogi, þar sem jafnframt er staðsettur vörulager.

Við sérhæfum okkur í sölu og þjónustu á dælum, rafmótorum og lokum, auk þess sem við bjóðum mikið úrval varahluta eins og dæluöxla, dæluhjól og eitt mesta úrval ásþétti á landinu. Við störfum eingöngu með traustum og vel þekktum framleiðendum og tryggjum þannig viðskiptavinum okkar hágæða búnað og áreiðanleika í rekstri. Við getum útvegað dælur og búnað í flest verk, óháð umfangi eða aðstæðum, og aðstoðum viðskiptavini við að finna hagkvæmustu lausnina hverju sinni.

Við leggjum mikla áherslu á faglega þjónustu og ráðgjöf með lausnamiðaða nálgun. Á sölusviði starfar reynslumikið tækni- og þjónustufólk sem aðstoðar við val, viðhald og uppfærslu á búnaði. Við búum yfir mikilli þekkingu á lausnum fyrir sjávarútveg, fiskeldi, veitur og aðra iðngeira, og leggjum áherslu á að finna hagkvæmar og áreiðanlegar lausnir sem henta þínum rekstri.

Opnunartímar:
Kl. 8:00 – 16:00 mánudag-fimmtudag
Kl. 8:00 – 15:00 föstudag

Contacts

Baldvin Agnarsson
Lagerhald / sölumaður
Dusan Loki Markovic
Sviðsstjóri sölusviðs
Oddsteinn Guðjónsson
Sales
Símon Þór Hansen
Technical advisor, Sales department
Þorvaldur Tolli Ásgeirsson
Sales

Main service

What are you looking for?

HD notar vefkökur m.a. til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.