Titringsmælir
Titringsmæling (Vibration Analysis) er ein skilvirkasta aðferðin til að meta ástand vélbúnaðar. Með greiningu á tíðnimynstri (FFT spectrum analysis) eru gögn úr mælum unnin í sérhæfðum hugbúnaði þar sem hægt er að bera saman tíðni og greina frávik sem benda til bilana, svo sem í legum, öxlum eða gírkassa.
Með þessari aðferð er unnt að greina bilanir á byrjunarstigi og grípa til aðgerða áður en þær þróast í bilanir.
HD býður bæði færanlega titringsmæla fyrir reglubundnar skoðanir og háþróaðan búnað fyrir ítarlega tíðnigreiningu og langtímavöktun. Lausnirnar henta fyrir viðhaldsteymi sem vilja taka upplýstar ákvarðanir byggðar á mælanlegum og rekjanlegum gögnum.
Auk sölu á búnaði býður HD upp á uppsetningu, gagnaúrvinnslu og reglulega vöktun sem hluta af þjónustusamningi, fyrir þá sem vilja heildstæða lausn.